www.strandhreinsun.is
Mín tillaga er um það að þetta verkefni stjórnvalda er hvorki gagnsætt né hvetjandi fyrir þá aðila sem vilja og óska eftir því að vera þátttakandi. Nokkrir aðilar hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um að vilja leggja málefninu liðsinni sitt. Það eru aðilar sem skrifuðu undir viljayfirlýsinguna sem hafa fengið lang hæsta styrkinn til þessa, vel yfir 30 milljónir og það er hvergi hægt að sjá neitt um þeirra framlag á þessum vef, Það eru engar vigtarnótur né myndir af hreinsunum, bara eitthvert slembitölubix á yfir 500 stöðum sem ekki er hægt að taka trúanlegt ef ekkert er til að bakka þau verkefni upp. Sjálfur er ég einn af þeim sem skrifuðu undir viljayfirlýsinguna, hef hreinsað lang mest upp í tonnum talið, hef sett inn myndir og skráð samviskusamlega í ársskýrslur og sent yfirvöldum. Það má alveg spara þetta verkefni og slaufa síðustu úthlutun fyrir árið í ár sem eru 30 milljónir. Þeir sem hafa fengið mest og gert minnst eru Veraldarvinir
Athugasemdir: 1
Oldest
•
Newest
•
Most likes
•
Fewest likes
-
27 jan., '25
Stafrænt Ísland StjórnandiDaginn,
tillaga sem þessi á heima á borði hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar.